26nóvember
Jaeja ja. Tha er ferdin okkar i Frakklandi buin. Elin er nuna komin til Islands. Eg sit a netkaffi a Stansted flugvelli og bid eftir ad check-in opni fyrir flugid mitt til Bergen.
Thetta er audvitad buin ad vera snilldar ferd og eg hlakka mikid til ad koma til Islands ad hitta alla, skrytid ad vid Elin verdum allt i einu ekki saman a hverjum degi hehe.
Lentum i mjog skemmtilegu yfir-thyngdar problemi a leidinni fra Marseille til London. Vorum med 10kg i yfirvigt hehe og thurftum ad taema thaer naestum, fengum ad taka 2 handtoskur inn i velina en thurftum samt sem adur ad borga einhverja aukavigt. Er ad bidja til Guds um ad eg thurfi thess ekki nuna. Er ekki i studi fyrir ad eyda peningum i vitleysu (kaldhaedni...??)
Annars tha eru jolin bara ad koma og allt med theim. Voda jolalegt herna a flugvellinum, allt ut i jolaskrauti og jolanammi .... mmmm.... eg aetla ad vera hevi dugleg ad baka piparkokur i Noregi med litlu fraenkunum :)
Annars koma sidustu myndirnar inn a naestunni, forum ut ad borda (eg var i gorgeous skonum minum!!!) og hittum ymist folk og hofdum that bara naes :)
Bid ad heilsa ykkur ollum,
Maren Heida
10nóvember
* Núna er ég ein í Montpellier, Maren fór að hitta Pabba sinn í Strassbourg, hefði verið gaman að fara með en maður á víst ekki endalausa peninga!!
*Vikan var skemmtileg, skóli + 2 djömm búin samt er bara föstudagur 
*Ég fór í skartgripabúð áðan og bjó til mitt eigið hálsmenn það er mjög fallegt, geggjað stolt !!
*Í gær fór ég í rauðvíns og osta partý hjá Kristínu, Hjördísi og Hinriki þar var ég, þau, Sesselja og Einar aðrir Íslendingar hér, ein þýsk stelpa, ein finnsk, ein frönsk, einn amerískur strákur og einn sænskur/franskur... mmm ég elska osta og rauðvín...geggjað næs 
*Þau eru svo góð við mig að þau leyfa mér að gista með Maren er í burtu, annars verð ég svo einmana.
*Á morgun ætlum við svo kannski eitthvað út fyrir Montpellier að skoða og jafnvel kaupa.
*Í kvöld er djamm og líka á morgun ;)
*Maren kemur svo aftur hingað á Sunnudag ...
*Barcelona er svo á dagskrá næstu helgi, við getum bara ekki sleppt því fáum lestarmiða fyrir 57 evrur báðar leiðir og svo þekkjum við svo góða Íslendinga þarna að þeir eru búnir að bjóða okkur gistingu 
*Í Barcelona verður farið á eitt gott verslunartripp ásamt að trúristast mikið...!!
*Ég vann hvítvínsflösku áðan í bloggleiknum hennar Lísu, ég er svo klár.
*Það er mjög gaman hérna, svo ljúft líf...
*Ég elska að kaupa í matinn hérna það er svo miklu skemmtilegra en heima.
*Ég elska hvað vín er ódýrt hérna.
*Ég elska bakaríin hérna.
*Ég elska hvað það er heitt hérna.
*En ég elska samt Ísland mest!!
*Ég hlakka rosalega mikið til að koma heim og hitta alla..það styttist...:)
*Ég er að hlusta á Nylon.
*Ég er farin í sturtu núna og hætt þessu bulli.
*Ég er samt ekki eins klár og Maren og kann ekki að setja inn myndir.
Bon weekend
Elín Dís
05nóvember
Jájájá... Við erum búnar að setja inn ENN fleiri myndir. Íslendingavinir okkar héldu smá Halloween partý þar sem komu saman ýmis þjóðerni og auðvitað bara stuð fram eftir nóttu. Við Elín vorum meira að segja svo öflugar að sofna kl. 03 þegar gestirnir voru ennþá frammi, ekki vanar svona öflugu djammi frá Balaruc sko ;)
http://www.pixagogo.com/8812544892Annars ættum við kannski að skella inn smá nýjum fréttum hingað fyrst við erum nú komnar með þetta æðislega fría net aftur (og þurfum ekki að borga 10€ fyrir 2klst eins og á Balaruc!!)

Við erum semsagt komnar aftur til Montpellier af því að þessi elskulegu bær Balaruc og hótelið okkar Mercure var ekki alveg að gera sig fyrir okkur eða frönskuna okkar, þar sem við ætluðum að reyna að bæta okkur í henni. Það var ekkert fyrir okkur að gera þarna, engir kúnnar að tala við (að meðaltali 7 kúnnar á dag!) þannig að við sáum okkur tilneyddar til að segja upp vinnunni (sem M. Gris var ekkert allt of ánægður með...) og fara aftur til elsku Monpellier okkar :)
Residence l'Observatoire
Núna erum við byrjaðar í skólanum aftur sem er bara frábært og gaman í honum eins og alltaf. Síðan fundum við LOKSINS heimavist hérna bara rétt hjá miðbænum, ennþá nær en sú sem við vorum á í september. Við fengum að gista hjá Íslendingunum (Kristínu, Hjördísi, Hinrik) í 4 nætur því við vorum heimilislausar þegar við komum til Montpellier. Þökkum þeim kærlega fyrir þetta og vonum að við höfum ekki verið þeim til ama

Síðan komum við okkur bara vel fyrir hérna á nýju heimavistinni og nýtum okkur núna fría netið okkar alveg í botn og erum að fílaða!!

Reyndar er ekki snjór en samt...Hinsvegar erum við ekki alveg að fíla kuldann sem er genginn í garð hérna í bænum. Höfum þurft að taka upp vettlinga, húfur og trefla ásamt ullarjökkum til að deyja ekki úr kulda!! Þetta er þó eitthvað óvenjulega kalt og við alveg svaka heppnar að fá að lenda í því, en ég meina við erum nú einu sinni Íslendingar og það er allavega ekki stormur hérna eins og er á Íslandi!!

Þannig að núna erum við bara mjög sáttar við lífið og tilveruna, reynum okkar besta í að bæta okkur í frönskunni og það gengur bara ágætlega held ég.
Frábært líka að geta djammað aðeins... Gerðum einmitt ekkert af því í heilan mánuð!!! Iss það er náttla bara hrikalegt, en það var lítið hægt að djamma í Balaruc með 70ára fólkinu þar, þannig að núna tökum við bara á því hérna í Montpellier síðasta mánuðinn okkar og djömmum eins og alvöru Íslendingar. Það hefur reyndar ekkert gengið rosa vel hingað til. Fórum þó í Halloween partý til Íslendinganna á þriðjudaginn og svo á föstudaginn í skítakulda fórum við út að borða með þeim og ætluðum FEITAST að djamma, en svo var svo kalt í íbúðinni þeirra og enginn í stuði fyrir neitt nema kúr undir sæng!!

Í gær hinsvegar kom kærasti frænku Elínar í bæinn og við ákváðum, eftir mjög mikinn leti-laugardag, að kíkja á kaffihús með honum og vini hans. Eftir á fórum við svo á Circus, sem er skemmtistaður og þar hittum við bara alla fyrrverandi heimavist okkar sem er bara stuð auðvitað og núna ætlum við Elín klárlega að bæta okkur í djamminu og kíkja jafnvel eitt kvöldið á gömlu heimavistina okkar í fyrirpartý fyrir bæinn

Núna er komin smá tilhlökkun yfir því að koma heim auðvitað. Jólaundirbúningurinn alveg á fullu hérna í matvörubúðunum með fullt af girnilegu jólanammi mmmmm en við hlökkum nú samt meira til að koma heim til Íslands í ALVÖRU jólamat og jólanammi og jólaskap!!


Þá held ég að það sé bara ekkert meira að frétta í bili - endilega skoðið allar myndirnar sem við vorum svo duglegar að setja inn - Lísa þær eru fyrir þig og næturvinnuna þína ;)
Hafið það gott í bili,
Maren Heiða & Elín Dís
.JPG)
p.s. Ég veit, ég er geggjað klár í að setja inn myndir!!
03nóvember
Komnar inn fleiri myndir frá heimsókn Önnu og Lísu og frá Heimsókn Mömmu og Pabba míns... :)
Enjoy... :)
Elín!!
27október
jebb, tid lasud rett!!
Naesta sunnudag munum vid vera fluttar aftur til montpellier og aetlum ad snua aftur i skolann okkar thar, LSF.
Algjort aedi, faum allan styrkinn okkar samt sem adur!!! Enntha meira aedi!!!
Thetta verdur stutt, nenni ekki langri faerslu.
Eftir komu okkar til Montpellier verdur mikid meira um nyjar frettir sem og nyjar myndir, especially fyrir hana Lisu okkar sem hefur svo oendanlega litid ad gera i vinnunni sinni hehe ;)
Lov ju og sjaumst / heyrumst seinna allesammen :)
- Maren Heida & Elin Dis